Skoðun

Rann­sóknir á söfnum skapa dýr­mæta þekkingu

Arndís Bergsdóttr skrifar

Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins 18. maí, sem í ár er tileinkaður rannsóknum og fræðslu, er mikilvægt að brýna hlutverk safna. Söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningar- og náttúruarfleifðar, heldur einnig virkir þátttakendur í fræðslu og ábyrgri nýsköpun. Þessi dagur kallar á ígrundun um hlutverk safna í nútímasamfélagi sem stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum, þar á meðal loftslagsbreytingum og þverrandi líffræðilegum fjölbreytileika, auk vaxandi kynþáttahyggju og fordómum gagnvart fjölmenningu.

Lengi vel hafa söfn verið álitin staðir sem varðveita minjar um menningu, og nátturu fortíðar, en þau eru jafnframt mikilvæg miðstöðvar rannsókna sem geta haft djúpstæð áhrif á framtíðina. Með því að rannsaka samskipti mannkyns við náttúruna og hvernig menning mótast af ríkjandi hugmyndum og umhverfinu, geta söfn skapað dýrmæta þekkingu um hvernig best sé að takast á við núverandi vandamál og áskoranir framtíðar.

Á Alþjóðlega safnadeginum í ár er sérstök áhersla lögð á mikilvægi rannsókna og fræðslu í safnastarfi. Rannsóknasetur í safnafræðum, sem sameinar fræða- og safnafólk, er hlekkur í þessari þróun. Setrið er vettvangur samstarfs þar sem akademískar rannsóknir, rannsóknarsýningar safna, listir og fagleg ástundun mætast. Slíkur samtakamáttur opnar nýja möguleika og leiðir til nýsköpunar sem ekki aðeins örvar skilning og styrkir þjálfun safnafólks framtíðarinnar, heldur eflir söfn sem lifandi miðstöðvar þar sem fram fara mikilvægar umræður um sjálfbærni og menningarlegan skilning.

Á þessum tímamótum, þegar við tökumst á við áskoranir samtímans, er mikilvægt að eigendur safna, sem eru samfélagið, ríki og sveitarfélögin, geri þeim kleift að grípa þetta tækifæri. Með því að nýta sér kraftinn sem felst í rannsóknum og fræðslu, geta söfn orðið þýðingarmiklar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, útrýmingu tegunda og í leitinni að réttlátari heimi.

Safnadagurinn er því ekki aðeins dagur til að heiðra fortíðina, heldur einnig tækifæri til að móta framtíðina. Á þessum degi er okkur öllum boðið að taka þátt í að endurskilgreina og styrkja þátt safna í að byggja brú milli fortíðar, nútíðar og framtíðar, og tryggja að þau séu áfram miðstöðvar þekkingar, menningar og nýsköpunar.

Höfundur er aðjúnkt í safnafræði, framkvæmdastýra Rannsóknaseturs í Safnafræðum, ritstýra Nordisk Museologi og rannsóknasérfræðingur hjá ROCS rannsóknasetrinu, Háskóla Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×